top of page

Húsreglur

BÓKANIR/REGLUR:

Koma og brottför er kl: 14.00

Hægt er að leigja allt húsið eða einstök svefnpláss.
Eftirfarandi tímabil er eingöngu opið fyrir að leigja svefnpláss í húsinu:

  • Vetrarfrí og helgar fyrir og eftir.

  • Páskafrí frá föstudegi fyrir pálmasunnudag t.o.m. annars í páskum.

  • Haustfrí og helgar fyrir og eftir.

Einungis húsnefnd getur tekið ákvörðun um að leigja allt húsið áðurnefnd tímabil.

Eftirfarandi reglur gilda um leigu á húsinu (reglur hanga uppi í húsinu):

  • Reykingar eru stranglega bannaðar í húsinu.

  • Alfarið er bannað að hlaða rafmagnsbíla við húsið.

  • Húsinu skal skilað hreinu og leigutaki er ábyrgur fyrir þrifum og að húsreglum sé fylgt. Verði misbrestur á þessu áskilur Íslendingafélagið í Oslo sér rétt til að krefja leigutaka um greiðslu sem nemur þeim kostnaði sem skortur á þrifum hefur í för með sér fyrir félagið.

  • Við brottför skal alltaf loka fyrir vatn, stilla ofna og varmapumpu eins og leiðbeiningar sem hanga uppi í húsinu segja til um.

  • Leyfilegt er að hafa hunda í húsinu þegar allt húsið er bókað eða ef allir sem eiga bókað eru samþykkir hundinum. Þeir mega ekki vera í betri stofunni eða uppi í rúmum, öll svæði sem hundurinn hefur verið á skulu vera sérstaklega vel þrifin fyrir brottför.

Húsið á að vera ti búið fyrir næsta leigjanda kl: 14.00 á brottfaradegi. Hægt er að hafa samband við húsnefnd á norefjellhuset@hotmail.com ef óskað er eftir að fá að koma fyrr eða skila seinna, því miður er ekki alltaf hægt að verða við þeirri ósk, fer m.a. eftir aðsókn í húsið.

Þegar bókað er:

  • Tilgreina fjölda gistiplássa, skiptingu fullorðinna og barna undir 16 ára.

  • Taka skal fram hvort um félagsmann er að ræða eður ei. Til að geta leigt húsið á verði fyrir félagsmenn, þarf að hafa verið skráður félagi í minnst tvo mánuði og að hafa greitt árgjaldið.

  • Reikningur er sendur á uppgefið tölvupóstfang leigutaka.

  • Bókun er ekki staðfest fyrr en greiðsla hefur borist.

  • Svefnpláss skulu greidd þrem vikum fyrir komu, ef bókað er með skemmri fyrirvara skal greiða strax.

  • Við bókun á öllu húsinu skal greitt tveimur mánuðum fyrir komu. Ef bókað er innan við tveimur mánuðum fyrir komu, skal greiða reikning eigi síðar en tveimur vikum eftir að hann er sendur.

  • Reikningur skal alltaf vera greiddur er leiga hefst.

  • Sá/sú sem er skráð fyrir bókuninni er ábyrgur fyrir greiðslu og ber persónulega fulla ábyrgð á húsinu. Berist greiðsla ekki innan setts tíma fellur pöntunin niður.

  • Kóði fyrir lás á hurð er sendur á leigutaka fyrir komu í húsið.

bottom of page